Label

Við gerum viðmót að betri upplifun

Við höfum verið með notendaupplifanir á heilanum síðan 2015. Fyrirtæki af öllum stærðum hafa leitað til Jökulá fyrir stafrænar vegferðir og hönnun vörumerkja.

Opnir flipar: líklega alltof margir

Greiningar

Sérfræðingar okkar kafa djúpt í hvert verkefni til að greina áskoranir, tækifæri, markhópa og notendasögur.

Ferlið felur í sér viðtöl við hagsmunaaðila og notendaprófanir -  þar á meðal með augnskanna okkar.
Vinnustofur
Hönnunarsprettir
Stafræn stefna
Greining

Upplifun notenda

Upplifun notenda mótar hvernig fólk sér og skilur fyrirtækið, hvort sem það er í viðmóti, á vef, í appi eða í vörumerki. Við hönnum upplifun sem er einföld, þægileg og skilar árangri.
Notendaprófanir
Notendaflæði
Vírlíkön
Upplýsingaflæði

Hönnun

Allt sem við sköpum er hannað til að auðvelda aðgang og skilvirk samskipti.
Allt sem við gerum endurspeglar vörumerkið þitt. Hönnun okkar er fyrsta kynni fólks af þér, og við tökum það alvarlega.
Viðmóthönnun
Vörumerkjahönnun
Hönnunarkerfi
Sjónræn stefna

Ítranir

Við vinnum þetta með þér frá upphafi til enda. Við sjáum um samskiptin, smáatriðin og lokaafhendinguna. Verkefnið er ekki búið fyrr en það er búið!
Notendaprófanir
Bestun
Greining á reynslu notenda
Aðgengisgreining

90% af kóðanum er til þess að laga 10%.

Saman getum við gert stóra hluti.

Hittumst yfir kaffi —
við bjóðum!